Félag ungra Framsóknarmanna í Skagafirði..
Könnun
HVER ER FRAMSÓKNARMAÐUR SKAGAFJARÐAR 2011?
Ása María Guðmundsdóttir
51 atkvæði

Ásta Pálmadóttir
6 atkvæði

Guðrún Sighvatsdóttir
8 atkvæði

Gunnar Bragi Sveinsson
14 atkvæði

Ingi Björn Árnason
19 atkvæði

Jóhannes Björn Þorleifsson
9 atkvæði

Óskar Harðarsson
6 atkvæði

Ragnar Stefán Rögnvaldsson
34 atkvæði

Stefán Vagn Stefánsson
22 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 169
26.01.2012 20:28:15 / RITSTJÓRN

Ragnar í formans framboð !!

  Nú er kominn sá tími að ég tel best fyrir framtíð Sambands ungra framsóknarmanna að nýju blóði verði hleypt í starfið. Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér til formensku í SUF.
Ég tel að undanfarin ár hafi starf SUF verið langt frá því að vera eins öflugt og það þarf að vera.

Þessu þarf að breyta. Undanfarið hefur SUF ekki verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni, en ég tel að skoðanir ungra framsóknarmanna hafi aldrei átt meiri samleið með þjóðinni en einmitt nú. SUF þarf að vera sterkur vettvangur sem ungt fólk vill taka þátt í.
Til þess þarf bæði að styrkja innra starf sambandsins og stórauka starfið út á við. Eitt aðalmarkmið mitt er að ungir framsóknarmenn geti sameinast og verið stoltir af að taka þátt í öflugu starfi SUF.

Ragnar S. Rögnvaldsson
formaður
Félags ungra Framsóknarmanna í Skagafirði


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2012 20:21:50 / Ingi Björn

Ungir framsóknarmenn á Ísafirði

  Félag ungra framsóknarmanna á norðanverðum Vestfjörðum var endurvakið í síðustu viku. Stofnfundurinn var sérstakur fyrir þær sakir að rafmagnið fór af Ísafjarðarbæ rétt áður en fundurinn átti að hefjast. Ungu framsóknarmennirnir létu það ekki á sig fá og fór fundurinn fram og félagið stofnað í skjóli myrkurs. 

Formaður félagsins var kjörinn Gauti Geirsson frá Ísafirði en hann er jafnframt formaður Nemendafélags Menntaskólans á Ísafirði. Aðrir stjórnarmenn eru Agnes Ósk Marzellíusardóttir (varaformaður), Ásgeir Hinrik Gíslason, Anton Helgi Guðjónsson og Magnús Traustason. 

Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, var gestur fundarins. 


Heimild: bb.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2012 22:30:29 / RITSTJÓRN

SUF-Þing á Egilsstöðum

  Hér með er boðað til 37. Sambandsþings Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í Menntaskólanum á Egilsstöðum dagana 11. og 12. febrúar 2012. Allir ungir framsóknarmenn hafa rétt til setu á þinginu. Þeir sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn fyrir laugardaginn 14. janúar 2012 á aldrinum 16 til 35 ára og hafa greitt þinggjöld hafa atkvæðarétt á þinginu.

Samkvæmt grein 4.5 í lögum SUF skal framboðum til formanns skila til skrifstofu Framsóknarflokksins eigi síðar en viku fyrir setningu sambandsþings eða fyrir laugardaginn 4. febrúar. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn SUF er bent á að hafa samband við þá einstaklinga sem skipa starfsnefnd þingsins eða á netfangið suf@suf.is.

SUF-arar hvattir til þess að skila inn tillögum að ályktunum sem fyrst á netfangið suf@suf.is. Þær tillögur sem liggja fyrir laugardaginn 4. febrúar verða prentaðar með öðrum þinggögnum. Tillögurnar verða ræddar í þeim sex málefnahópum sem starfandi eru á þinginu.

Drög að dagskrá:

Laugardagur 11. febrúar
11.00 - Skráning og afhending þinggagna
12.00 - Þingsetning
Kosning þingforseta (2)
Kosning þingritara (2)
Kosning starfsnefndar (3)

12.10 - Skýrsla stjórnar og reikningar
12.30 - Málefnahópar kynntir
12.40 - Málefnahópar taka til starf
Hópur 1 - Stjórnskipun, mannréttindi, lýðræði og utanríkismál
Hópur 2 - Efnahagsmál
Hópur 3 - Atvinna, samgöngur og umhverfi
Hópur 4 - Menntun, menning og íþróttir
Hópur 5 - Velferð
Hópur 6 - Lagabreytingar og aðrar tillögur

17.00 - Sundferð
19.00 - Fordrykkur
20.00 - Hátíðarkvöldverður og skemmtun fram eftir kvöldi

Sunnudagur 12. febrúar
09.00 - Málefnahópar, framhald
10.00 - Afgreiðsla mála
12.30 - Hádegismatur
13.15 - Kosningar:
Formaður
Stjórn (12)
Varastjórn (12)
Skoðunarmenn reikninga (2)
Varaskoðunarmenn reikninga (2)

15.30 - Þingslit

 

Gagnlegar upplýsingar:

Þinggjöld
Þinggjald er 1.000 kr. innifalið í þinggjaldi er kaffi og með því á laugardegi og hádegismatur á sunnudegi, auk þinggagna. Tekið verður á móti greiðslu þinggjalda til kl. 10.30 á sunnudegi.

Fundarstaður
Formleg þingstörf fara fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum við Tjarnarbraut.

Hátíðarkvöldverður
Hátíðarkvöldverður á laugardegi kostar kr. 3.000,-

Seturéttur á þinginu
Allir ungir framsóknarmenn hafa rétt til setu á þinginu. Þeir sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn fyrir laugardaginn 14. janúar 2012 á aldrinum 16 til 35 ára og hafa greitt þinggjöld hafa atkvæðarétt á þinginu.

Framboðsfrestur
Samkvæmt grein 4.5 í lögum SUF skal framboðum til formanns skila til skrifstofu Framsóknarflokksins eigi síðar en viku fyrir setningu sambandsþings eða fyrir laugardaginn 4. febrúar. Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stjórn SUF er bent á að hafa samband við þá einstaklinga sem skipa starfsnefnd þingsins eða á netfangið suf@suf.is.

Lagabreytingatillögur
Samkvæmt grein 6.4 í lögum SUF skal tillögum að lagabreytingum skilað eigi síðar en 14 dögum fyrir setningu þings sambandsins eða fyrir laugardaginn 28. janúar. Tillögum skal skilað á netfangið suf@suf.is.

Málefnastarf
SUF-arar hvattir til þess að skila inn tillögum að ályktunum sem fyrst á netfangið suf@suf.is. Þær tillögur sem liggja fyrir laugardaginn 4. febrúar verða prentaðar með öðrum þinggögnum. Tillögurnar verða ræddar í þeim sex málefnahópum sem starfandi eru á þinginu.

Hópefli
Á laugardeginum kl. 17:00 verður skundað í sund í sundlauginni á Egilsstöðum, æskilegt er því að taka með með sundföt.

Gisting
Eftirfarandi gistirstaðir bjóða upp á afslátt þinghelgina:

Lyngás Guesthouse
Tveggjamanna herbergi 4.000 kr. á mann. - http://lyngas.is/

Hótel Hérað
Þorratilboð hótels Héraðs er tvær nætur á verði einnar. - http://icelandairhotels.is/


STJÓRN SUF


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2012 13:05:47 / RITSTJÓRN

Gummi-Besti-L

      Nú er ljóst að Guðmundur Steingrímsson fyrrverandi framsóknar- samfylkinnar -framsóknarmaður og víðar er komin í samstarf við Bestaflokkinn í Reykjarvík.  Þegar Guðmundur gekk úr framsóknarflokknum fóru nokkrir framsóknarmenn með honum.  Enda öll frjálst að velja sinn nætur stað.

Svo virðist sem sumir þeirra hafi nú þegar gefið Guðmund upp á bátinn og telji hann á mjög undarlegri leið í lífinu. En aðrir fylgja honum fast eftir bara eins og gengur.

En það sem hræðir margan manninn í liði Jóns Gnarr er að þeir sem þéttast styðja Guðmund eru einmitt þeir sem hvað harðast börðust og voru í andlit Framsóknarflokksins í síðustu hreppsnefndarkosningum í Reykjarvíkurhreppi.

En útreið síðustu kosninga  eru þau allra verstu sem Framsóknarflokkur hefur gengið í gegnum.  En auðvita var það einhverju allt öðrum að kenna en þeim mönnum sem nú hafa ákveðið að standa þétt að baki Guðmundar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2012 12:50:23 / RITSTJÓRN

Munið að kjósa Framsóknarmann ÁRSINS

  Munið að kjósa Framsóknarmann Skagafjarðar 2011. Kosning er í fullum gangi og líkur ekki fyrr en 25.jan.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2012 14:04:45 / RITSTJÓRN

Kosning hafin !!

Kosning á Framsóknarmanni Skagafjarðar 2011 er hafin og stendur til 25. jan. nk.

Níu grjót harðir framsóknarmenn hafa verið tilnefndir í ár, og mun berjast um kosningu um nafn bótina "Framsóknarmaður Skagafjarðar 2011"

hægt er að kjósa hérna vinstra megin á síðunni

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2011 14:18:39 / RITSTJÓRN

"Framsóknarmaður Skagafjarðar 2011"

Undan farin sex ár hefur þessi síða staðið fyrir kjöri á Framsóknarmanni Skagafjarðar í desember. Og verður þetta ár engin undan tekning á því. Hefur þessi skemmtilegi leikur okkar vakið mikla athyggli og margir kosið. 

Að þessu sinni verður kosið á milli 6-8 einstaklinga sem þið lesendur góðir tilnefnið með því að skrifa athugasemd hér fyrir neðan með ykkar tillögu. Auk þess verður að sjálfsögðu hægt að setja inn tillögur á fésbók félagsins.

Ritstjórn vefsins mun síðan velja 6-8 nöfn úr tilnefningum og síðan munu þið lesendur góðir kjósa "Framsóknarmann Skagafjarðar 2010", kosningin hefst eftir nokkra daga.


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.12.2011 12:03:01 / Ingi Björn

Framsóknarflokkurinn 95 ára – Bjarta framtíð!

Framsóknarflokkurinn 95 ára – Bjarta framtíð!

Framsóknarflokkurinn fagnar 95 ára afmæli í dag sem elsti starfandi stjórnmálaflokkur landsins. Hann var stofnaður á Alþingi hinn 16. desember 1916 og hefur síðan orðið að fjöldahreyfingu yfir tólf þúsund félagsmanna á öllu landinu.

Uppruna Framsóknarflokksins má m.a. rekja til tveggja hreyfinga sem höfðu mikil áhrif á íslenskt þjóðfélag á fyrstu árum aldarinnar, samvinnuhreyfingarinnar og ungmennafélaganna. Þessi samtök börðust fyrir almennum framförum og umbótum í landinu, aukinni menntun og atvinnurekstri sem tryggði mönnum sannvirði fyrir vöru og vinnu. Þessi hugsjónalegi bakgrunnur hafði mikil áhrif á stefnu flokksins og gerir enn í dag.

Saga Framsóknarflokksins er samofin framfarasögu Íslands á 20. öldinni. Hvort sem litið er til velferðarmála, uppbyggingar menntunar fyrir alla landsmenn, almannatrygginga eða nýsköpunar og eflingar atvinnulífs, þar hefur Framsóknarflokkurinn komið við sögu síðastliðin 95 ár. Þetta er saga sem framsóknarmenn eru stoltir af að tilheyra og vilja berjast fyrir að haldi áfram til framtíðar. Framsóknarmenn setja manninn og velferð hans í öndvegi og vilja skila hverri kynslóð betra þjóðfélagi, fleiri tækifærum og ríkari menningu.

Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur félagshyggjuflokkur
Allt frá upphafi hefur Framsóknarflokkurinn verið frjálslyndur félagshyggjuflokkur. Það er hann enn og það á hann að vera. Við sem í sameiningu myndum Framsókn megum aldrei gleyma að tilgangurinn með baráttunni er fyrst og síðast að hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Við viljum öll sjá betra samfélag, stéttlaust samfélag sem gleymir ekki þeim sem eiga um sárt að binda eða standa höllum fæti.

Við viljum búa í samfélagi þar sem allir eru jafnir fyrir lögum, samfélagi þar sem ekki ríkir sundurþykkja eða öfund, samfélagi þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín en menn eru jafnframt ábyrgir gjörða sinna.

Það að vera frjálslyndur miðjuflokkur felur ekki í sér að vera laus við pólitískar skoðanir. Það snýst um að meta hvert mál fyrir sig út frá rökum og staðreyndum en ekki út frá fyrir fram gefinni hugmyndafræði. Því verður svo að fylgja að menn séu tilbúnir að berjast fyrir því sem þeir telja rétt hverju sinni. Flokkur sem kennir sig við hina rökréttu leið verður líka að vera prinsippflokkur, því að ef menn standa ekki fastir á grundvallaratriðum í samtímanum eru þeir að auka á vanda framtíðarinnar.

Við eigum að vera tilbúin að samþykkja góðar hugmyndir sama hvaðan þær koma og alltaf reiðubúin að ræða kosti og galla ólíkra leiða. Það er hin eiginlega framsóknarleið, að nálgast viðfangsefnin fordómalaust af skynsemi og rökhyggju. Þessu viðhorfi var lýst þannig af Hermanni Jónassyni, fyrrum formanni flokksins, að stefna Framsóknarflokksins væri hvorki til hægri né vinstri heldur beint áfram.

Framsóknarmenn vilja jákvæð og sterk samskipti við erlend ríki og samskipti Íslands við alþjóðasamfélagið sem best. Þar hefur Ísland mikið fram að færa og tækifærin eru mörg og mikilvæg. Framsóknarmenn vilja að allir þeir sem hafa eitthvað fram að færa um lausn þjóðfélagsmála fái tækifæri til að tjá skoðun sína og reyna að vinna henni fylgi áður en ákvarðanir eru teknar. Okkur ber að hlusta á góðar hugmyndir á málefnalegum grundvelli en ekki dæma þær út frá því hvaðan þær koma. Einungis þannig mun samfélaginu miða fram á við.

Framsóknarstefnan á ætíð fullt erindi við Íslendinga
Við lifum á sérstökum tímum í íslenskri sögu, tímum þar sem við okkur blasa bæði ógnir og ómæld tækifæri. En ógnirnar eru smávægilegar í samanburði við þau gífurlegu tækifæri sem Íslendingar standa frammi fyrir, rétt eins og stóð á þegar Framsóknarflokkurinn var stofnaður, rétt áður en Ísland varð fullvalda ríki og hóf mesta og lengsta framfaratímabil sem þjóðin hefur upplifað.

Framsóknarmenn hafa undanfarin tvö ár lagt fram ótal tillögur til lausnar á vandamálum sem að okkur steðja, ekki hvað síst varðandi efnahagsmál og atvinnumál. Hugleiknust hefur okkur verið staða heimilanna í landinu, skuldamálin. Þau eru brýnasta úrlausnarefnið.

Síðustu tvö ár hafa sýnt svo óhrekjandi er að þær tillögur sem við höfum lagt fram hafa sannað gildi sitt. Þessar tillögur eru byggðar á hinni skynsömu og rökföstu framsóknarstefnu, stefnu sem í 95 ár hefur hvað eftir annað verið helsti drifkraftur framfara og uppbyggingar í íslensku samfélagi.

Til að kveikja á ný slíka uppbyggingu, til að nýta þau ómældu tækifæri sem Ísland stendur frammi fyrir, þarf framsóknarstefnan að fá hljómgrunn, heyrast hátt og skýrt. Við þurfum stjórnvöld sem efla með íslensku þjóðinni kjark og von. Stjórnvöld sem veita stöðugleika og sýn á framtíðina. Það er engin ástæða til að Íslendingar geti ekki nú, eins og áður, fyllst bjartsýni og von. Og í raun eigum við að hafa meira en von. Við eigum að hafa trú. Óbilandi trú á bjarta framtíð Íslands.

Framsóknarflokkurinn var stofnaður fyrir 95 árum í krafti þeirrar vissu að íslensku þjóðinni væru allir vegir færir. Það á jafn vel við í dag eins og áður. Og við ætlum að standa undir nafni sem framsóknarmenn, við ætlum að vísa veginn fram á við, ganga á undan með trú á eigin mátt og bjarta framtíð Íslands að vopni.

Kæru framsóknarmenn og góðir Íslendingar: Til hamingju með daginn!


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2011 21:03:40 / Ingi Björn

Stefán Vignir nýr formaður

Nýlega hélt Félag ungra Framsóknarmanna í Reykjarvík aðalfund sinn. Þar var Stefán Vignir Skarphéðinsson kjörinn nýr formaður.

Ungir framsóknarmenn óska Stefáni til lukku og hlakka til að vinna með honum.

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.11.2011 20:52:40 / Ingi Björn

Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins

Boðað er til fundar í miðstjórn Framsóknarflokksins helgina 25.-27. nóvember nk. Fundurinn fer fram utan höfuðborgarsvæðisins.

Dagskrá og staðsetning verður auglýst síðar.

Framsóknarflokkurinn


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.10.2011 11:04:47 / RITSTJÓRN

Miðstjórnarmenn ungra í Skagafirði

 Á þingi Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi um síðustu helgi voru kosnir miðstjórnarmenn úr Norðvesturkjördæmi.

Eftir farandi einstaklingar voru kosnir í Miðstjórn úr Félagi ungra Framsóknarmanna í Skagafirði:

  • Ragnar Stefán Rögnvaldsson
  • Guðjón Ebbi Guðjónsson
  • Ása María Guðmundsdóttir
  • Ingi Björn Árnason

Varamenn í miðstjórn úr ungum í Skagafirði var kosin Sigríður Inga Viggósdóttir


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2011 13:21:45 / RITSTJÓRN

Sindri tekur sæti á Alþingi

     Í upphafi þingfundar mánudaginn 17. okt.(gær) tóku Sindri Sigurgeirsson sæti á Alþingi sem varamaður Gunnar Braga Sveinssonar.

Verður Sindri á þingi í tvær vikur

Er þetta í þriðja skifti sem Sindri tekur sæti á Alþingi og í fyrsta skifti á þessu ári. Sindri er 37 ára bóndi og  formaður Sauðfjárbænda á Íslandi.


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2011 12:54:06 / RITSTJÓRN

Ný stjórn KFNV

   Um nýliðna  helgi var þing Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi (KFNV)  haldið í Stykkilshólmi. Var þingið vel sótt og mikil samstaða og baráttuandi sem einkendi þingið.


Svava Friðgeirsdóttir var endurkjörin formaður KFNV.

Aðrir í stjórn voru kjörnir:
Guðrún Sighvatsdóttir       Skagafirði
Þorleifur Karl Eggartsson  Hvammstanga
Inga S. Ólafsdóttir              Ísafirði
Ingi Björn Árnason            Skagafiði
Halla Signý Kristjánsdóttir Bolungarvík
Valdimar Þorvaldsson       Akranesi

Valdimar er nýr í stjórn. En Sveinbjörn Eyjólfsson gaf ekki kost á sér áfram og erum honum þökkuð góð störf.

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.10.2011 21:20:27 / RITSTJÓRN

Skólasamfélagið Skagafjörður

Skagafjörður er kannski þekktasturfyrir hesta, söng og gleði, enda vagga hestamennskunnar hér. EnSkagafjörður getur sannarlega státað sig af fleiru eins og t.d.skólunum og því öfluga starfi sem fram fer í þeim. Á vegumsveitarfélaganna í Skagafirði eru hér reknir 3 leikskólar og 3grunnskólar sem starfa í 7 starfsstöðvum, í Varmahlíð, áSauðárkróki (2 starfsstöðvar), Hólum, Hofsósi og Sólgörðum,skóladagheimili og tónlistarskóli sem starfar í 6 starfsstöðvum.Nemendur í þessum skólum eru um 830 og starfsmenn skólanna eru um220. Auk skólanna sem sveitarfélögin reka eru hér starfandiFarskóli – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra,Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og Hólaskóli – Háskólinná Hólum. Það eru ekki mörg sveitarfélög af þeirri stærð semSkagafjörður er sem geta státað af jafn mikilli fjölbreytni ámenntasviðinu og óhætt að fullyrða að Skagafjörður séheildstætt skólasamfélag sem býður upp á fjölbreytta menntunfyrir alla aldurshópa.

Skólarnir í Skagafirði hafa sýntmikinn metnað í að skapa nemendum góð skilyrði til náms ogþroska enda sýna allar kannanir, bæði formelgar og óformlegar aðnemendur okkar eru í fremstu röð. Sveitarfélögin sem ogsamfélagið umhverfis skólana hafa einnig stutt ötullega viðbakið á þeim og haft mikinn metnað fyrir þeirra hönd. Gleggstadæmið um það er kannski Sáttmálasjóðurinn svokallaði, en þaðer sjóður sem Kaupfélag Skagfirðinga og sveitarfélögin tvöstofnuðu í þeim tilgangi að efla þróunar- og nýbreytnistarf íöllum skólunum í Skagafirði. Fyrir tilstuðlan þessa sjóðshefur verið hægt að koma á óteljandi metnaðarfullum og flottumverkefnum sem stuðla að bættum kennsluháttum, betri líðannemenda og auknum tækjabúnaði til kennslu og rannsókna. Þessisjóður á sér vart hliðstæðu hér á landi og er fátítt aðatvinnulífið komi að menntamálum með jafn myndarlegum hætti oghér er raunin.

Unga kynslóðin er fjöregg hverssamfélags. Það er því einkar mikilvægt að hlúa vel aðskólunum sem skipa svo stóran sess í lífi einstaklingsins, alltfrá eins árs aldri. Það er líka mikilvægt að hafa í huga aðskólastarfið sjálft er mjög háð umhverfi sínu og allri umræðu.Því skiptir máli að samfélagið allt sé sér meðvitað ummikilvægi góðs skólastarf og fjalli um skólamál af nærgætniog ígrundun. Það er von mín að samfélagið standi dyggan vörðum skólana hér eftir sem hingað til og setji skólana og starfþeirra í forgang á erfiðum tímum sem þessum.

Herdís Á Sæmundardóttir,

fræðslustjóri.


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2011 20:12:04 / Ingi Björn

Félagsfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar

Haldinn verður almennur félagsfundur í Framsóknarfélagi miðvikudaginn 5. október að Suðurgötu 3 á Sauðárkróki kl. 20:00. Á dagskrá verður m.a. kjör fulltrú á kjördæmisþing KFNV sem haldið verður í Sykkishólmi 15.-16. október.



Þeir sem komast ekki á fundinn en vilja gjarnan fara sem fulltrúar á kjördæmisþingið hafi samband við formann félagsins fyrir fundinn.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 98
KAFFISTOFAN
http://farm3.static.flickr.com/2061/2239814972_9ca50393a7_o.jpg
Varla hafa  setið á Alþingi aðrir eins þingmenn, eins og þeir fjórmenningar sem voru kosnir á þing fyrir Borgarhreyfingun í síðustu kosningum.  Líklega hafa engir fjórir þingmenn talað eins oft niður Alþingi í ræðum og riti. Á sama tíma tala þau um að þau séu rödd fólksins í landinu. ( ansi er þá rödd fólksins fámenn í landinu) Á kaffistofunni í dag voru allir þó sammála um eitt væri alveg örugt, að engin hætta væri á því að þurfa að hlusta á þau í stóli Alþingis eftir næstu kosningar. 
-------------------------------
Heyrst hefur að HALLUR MAGNÚSSON sé hættur í nýstofnaðar - óstofnaða hægri snú stjórnmálaflokks  Guðmundar Steingrímssonar, þetta þykir mönnu ótrúlega fljótt. Enda Hallur einn að aðal mönnum í þvi að þrýsta á Guðmund að ganga úr Framsóknarflokknum og stofna nýjan flokk.
------------------------------------
Á kaffistofunni gátu menn ekki annað en brosað þegar einn gesturinn rifjaði það upp að Jón Bjarnason ráðherra hefði einu sinni verið í sama flokki og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.









Heimsóknir
Í dag:  389  Alls: 1011511
Gamalt blogg