Á síðasta sveitastjórnar í Skagafirði vældu sjálfstæðismenn mikið yfir því að þeir ættu ekki menn í öllum nefndum, þótt þeir væru næst stærsti flokkurinn í sveitastjórn. Það er mjög einfalt þeir fengu einfaldlega ekki fleiri atkvæði en 24,5% og það nægir ekki til að þeir eigi einn mann í öllum nefndum, því urðu þeir að semja við hina minni hlutaflokkana um hver fengi hvaða nefnd. Í fyrsta lagi höfnuðu kjósendur þeim og í öðru lagi sömu þeir um hvaða nefndir þeir færu í.
--------------------------------
Heyrst hefur að Samfylkingarmenn hafi miklar áhyggjur af stöðu flokksins í Skagafirði, þar sem engu mátti muna að Samfylkingin myndi missa sinn eina mann,en þeir stefnu á tvo. Ljóst þykir að Gréta Sjöfn fær ekki annað tækifæri, en fáir vilja að hún hætti og Þorsteinn Brodda verði leiðtogi þeirra. Því hafa menn víst bitið á jaxlin og beðið Grétu að sitja út kjörtímabilið og þurka tárin.
--------------------------------
Heyrst hefur að ný sveitastjóri í Sv. Skagafirði verði kynntur á mánudaginn :)
--------------------------------
Á kaffistofunni í dag höfðu menn margt um að ræða enda allir að koma úr sumarfrí. Þar fauk margt sem verður ekki birt hér, enda galsi í mönnum eftir fríið.
-------------------------------
Á kaffistofunni ræða menn mikið um hið mikla fylgis tap Sjálfstæðisflokksins hér, enda töpuðu þeir manni, sitandi í minnihluta. Eru þetta þriðju kosningar í röð sem flokkurinn tapar um 5% fylgi. En í fyrstu kosningum í Sveitafélaginu Skagafirði árið 1998 fengu þeir um 40% fylgi en erum nú aðeins með 24,5% fylgi. Varla eru menn ánægðir með útkonun á þeim bænum, ætli oddvitin sé valtur hjá þeim ?